Akureyrarbær semur við Netkerfi og tölvur ehf um kaup á tölvubúnaði

Nýverið skrifuðu fulltrúar Akureyrarkaupstaðar og Netkerfa og Tölva undir samning um kaup á tölvum og tölvutengdum búnaði frá HP  en samningurinn nær til næstu tveggja ára.  Samingurinn er einn stærsti samningur Netkerfa til þessa.

 

Netkerfi og Tölvur ehf. er þjónustufyrirtæki á upplýsingatæknimarkaði.  Fyrirtækið er stofnað 1997 og er alfarið í eigu heimamanna.  Síðastliðin 10 ár hefur áherslan verið á sölu og þjónustu við HP búnað.  Fyrri hluta árs 2012 útnefndi bandaríski tölvurisinn Hewlett - Packard Netkerfi og Tölvur ehf sem HP Preferred Partner á Íslandi. Sem Preferred Partner hafa Netkerfi og tölvur aðgang að þjónustukerfum HP sem er ein af forsendum faglegrar þjónustu.  Til að ná slíkri útnefningu þurfa fyrirtæki að hafa á að skipa sölu- og þjónustustarfsfólki sem staðist hefur ákveðin próf frá fyrirtækinu ásamt því að hafa náð góðum árangri í búnaðarsölu.

Samningur Akureyrarkaupstaðar og Netkerfa og Tölva var gerður að undangenginni verðfyrirspurn til þriggja aðila og var það niðurstaðan að tilboð Netkerfa væri hagstæðast.  Óskað var eftir verðum í skilgreindan tölvubnúnað en ekki kveðið á um fjölda á samningstímabilinu.

Gunnar Björn Þórhallsson eigandi Netkerfa og Tölva segir samninginn mikilvægan fyrir fyrirtækið  enda hafi það verið fyrirtækinu kappsmál að byggja upp þjónustu og vöruframboð sem væri samkeppnishæft við stærri fyrirtæki á markaðnum, bæði hvað varðar verð á búnaði og gæði þjónustunnar.

Nýjast