12. nóvember, 2009 - 22:22
Stjórn Akureyrarstofu samþykkti á fundi sínum í gær, að taka tilboði Málverkasafnsins í verkið Ferð, eftir Tryggva
Ólafsson, en það er í eigu bæjarins. Formlegt tilboð hljóðaði upp á 1,2 milljónir króna í peningum og að auki
eftirprentanir eftir Tryggva.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkti jafnframt að andvirði sölunnar verði ráðstafað til kaupa á verkum eftir listamenn á Akureyri.
Tilhögun þeirra kaupa verður ákveðin síðar.