02. nóvember, 2012 - 15:53
Samningar undirritaðir
Í morgun var undirritaður nýr samningur Akureyrarbæjar og Norðurorku hf. annars vegar og Íslandsbanka hins vegar um bankaviðskipti til næstu fimm ára. Viðskiptin voru boðin út síðasta sumar og bárust tilboð frá Arion banka, Íslandsbanka og Landsbanka. Tilboð Íslandsbanka reyndist hagstæðast. Samningurinn varðar alla almenna viðskiptabankaþjónustu, innláns- og útlánsviðskipti. Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri, sagðist við undirritun samningsins vera mjög ánægður með framkvæmd útboðsins og þann samning sem nú væri í höfn.
Við hjá Norðurorku erum ánægð með útboðið og í framhaldi samninginn við Íslandsbanka. Samstarfið við Íslandsbanka hefur verið gott og farsælt og við eigum von á að svo verði áfram, sagði Helgi Jóhannesson forstjóri Norðurorku. Ingi Björnsson útibússtjóri Íslandsbanka á Akureyri, sagði við sama tækifæri að Íslandsbanki hafi undanfarin ár verið viðskiptabanki Akureyrarbæjar og hafi það samstarf gengið afar vel í alla staði. Bankinn hafi því lagt sig fram um að gera hagstætt tilboð í bankaviðskipti bæjarins og væri mjög ánægjulegt að þetta samstarf gæti haldið áfram, segir í tilkynningu frá Akureyrarbæ.