Akureyrarbær áfrýjar til Hæstaréttar

Akureyri
Akureyri

Akureyrarbær ætlar að áfrýja dómi vegna ólögmætra uppsagna á tveim­ur fyrr­ver­andi slökkviliðsmönn­um til Hæstaréttar. Þetta kemur fram í bókun bæjarráðs Akureyrar. Bær­inn rifti ráðning­ar­samn­ing­um þeirra fyr­ir­vara­laust og var dæmdur til að greiða um fimm milljónir króna í skaðabætur auk 2,1 milljóna króna málskostnaðar í Héraðsdómi Norðurlands eystra í júní.

Í mál­inu var ágrein­ing­ur með mönn­un­um og Ak­ur­eyr­ar­bæ um starfs­lok þeirra hjá Slökkviliði Ak­ur­eyr­ar í byrj­un des­em­ber 2012 eft­ir að hafa farið í eins árs launa­laust leyfi í des­em­ber 2011 og ráðið sig til starfa hjá öðru fyr­ir­tæki á meðan. Eft­ir að viðræður um starfs­lok runnu út í sand­inn mættu menn­irn­ir því aft­ur til vinnu hjá slökkviliðinu en þá hafnaði Ak­ur­eyr­ar­bær vinnu­fram­lagi þeirra. Málið teng­ist deil­um sem hafa staðið yfir lengi inn­an slökkviliðsins og beind­ust m.a. að sam­skipt­um þeirra við fyrr­ver­andi slökkviliðsstjóra, en menn­irn­ir sökuðu hann um einelti.

Ann­ar mann­anna er fyrr­ver­andi aðstoðarslökkvi­stjóri og hinn fyrr­ver­andi varðstjóri. Í mál­inu gerðu menn­irn­ir kröf­ur um van­gold­in laun og laun í upp­sagn­ar­fresti. Auk þess kröfðust þeir skaðabóta, þ.e. tjóns vegna tekjutaps, miska vegna starfs­loka, en jafn­framt gerðu þeir kröf­ur um miska­bæt­ur vegna einelt­is á vinnustað. Ak­ur­eyr­ar­bær hafnaði öll­um kröf­um mann­anna.

throstur@vikudagur.is

 

Nýjast