Þetta var ágætur fundur og ýmis málefnaleg sjónarmið komu fram sem við að sjálfsögðu reynum að taka tillit til, segir Logi Már Einarsson arkitekt um opinn íbúafund, þar sem kynnt voru drög að nýjum og gjörbreyttum miðbæ á Akureyri.
Við sögðum strax í upphafi fundarins að enn væru ýmis mál óleyst, svo sem fjöldi bílastæða á svæðinu og staðsetning hugsanlegrar samgöngumiðstöðvar. Síðan er stefnt að því efna til annars fundar í haust og þá verður myndin væntanlega farin að skýrast verulega. Við getum sagt að á þessum fundi hafi tillögunum verið flaggað, tilgangurinn hafi verið að fá viðbrögð við þeirri vinnu sem þegar hefur farið fram.
Miðað við byggða fermetra á svæðinu fækkar bílastæðum hlutfallslega nokkuð og segir Logi Már að líklega þurfi að fjölga stæðum um rúmlega 70, miðað við núverandi forsendur. Áformað er að að byggðar verði um 130 íbúðir á miðbæjarsvæðinu og komu fram efasemdir um að hinn venjulegi bæjarbúi vilji ekki búa á svæðinu. Íbúðirnar verði fyrst og fremst orlofsíbúðir.