Læknaráð Sjúkrahússins á Akureyri tekur undir þær áhyggjur sem fram hafa komið hjá forstjóra og framkvæmdastjórum sjúkrahússins varðandi mönnun og tækjakost. Þetta kemur fram í ályktun sem læknaráðið sendi frá sér í dag. Þar segir að hægt sé að draga úr endurnýjun og kaupum nýrra tækja í örfá ár en nútíma sjúkrahúsþjónusta verður ekki veitt án nútíma tækjabúnaðar.
Sjúklingar eigi að geta gengið að því sem vísu að ekki sé verið að nota úr sér gengin tæki og að heilbrigðiskerfið nái að fylgja helstu tækninýjungum og framförum í læknavísindunum eftir. Það gefi síðan auga leið að erfitt reynist að halda í og laða að nýja lækna og annað starfsfólk á stofnun þar sem þessi mál eru í ólagi, ekki hvað síst á landsbyggðinni.
Í ályktuninni segir ennfremur:
"Læknaráð hefur áhyggjur af mönnunarmálum sérfræðinga við sjúkrahúsið. Mönnun er tæp á nokkrum vaktalínum. Eitt af því sem lengi hefur verið varað við en nú er orðið aðkallandi úrlausnarefni er hvernig mönnun á vaktir verður leyst vegna 55 ára reglunnar svokölluðu. Í henni kemur fram óskoraður réttur sérfræðinga til að hætta að ganga vaktir við 55 ára aldur. Þetta er nokkurskonar snjóhengja í kerfinu því meðalaldur sérfræðinga er æði hár á mörgum deildum.
Yfirvöld hljóta að hafa gert sér grein fyrir þeim aukakostnaði sem af þessu myndi hljótast þegar þetta var samþykkt á sínum tíma. Það hlýtur því að vera bæði sjálfsagt og eðlilegt að aukið fé renni til stofnana þegar ráða þarf fleiri sérfræðinga til að manna vaktir. Ríkið hlýtur að gangast við þessum skyldum sínum eins og öðrum sem skýrt koma fram í samningum. Læknaráð styður stjórnendur Sjúkrahússins á Akureyri heilshugar í viðleitni þeirra til að fá aukið fé til tækjakaupa og til að tryggja að áfram sé hægt að halda úti þeirri vaktþjónustu sérfræðinga sem í veitt er í dag."