Agnes Hubert ræðir kynjajafnrétti á opnum fundi á Akureyri

Agnes Hubert
Agnes Hubert
Agnes Hubert, ráðgjafi á skrifstofu stefnumótunarráðgjafa í Evrópumálum, flytur erindi um hvernig kynjajafnrétti hefur stuðlað að samruna í Evrópu á opnum fundi á Hótel KEA, fimmtudaginn 20. júní kl. 12:00.
Jafnréttisstofa og Evrópustofa standa að fundinum sem er opinn og eru allir velkomnir.

Hubert hefur starfað lengi hjá framkvæmdastjórn ESB og er sérfræðingur hjá BEPA, Bureau of Economic Policy Advisors.
Hún hefur skrifað fjölmargar greinar og tvær bækur, þróað og kennt námskeið um ESB og kyngervi við Fletcher School of Law & Diplomacy (Tufts University)
og við Center for Political and Constitutional Studies í Madrid á Spáni. Þá hefur hún rannsakað samverkandi og styrkjandi áhrif kynjajafnréttis og Evrópusamrunans hvort á annað.

Nýjast