Lise Rye, sérfræðingur í evrópskri samtímasögu og einn af höfundum umtalaðrar skýrslu um kosti og galla EES-samningsins fyrir Noreg, fjallar um ástæðurnar fyrir andstöðu almennings í Noregi við aðild að Evrópusambandinu á opnum fundi á Hótel KEA,Akureyri, miðvikudaginn 20. mars kl. 12:00-13:30.
Lise Ryeer sérfræðingur í evrópskri samtímasögu við Tækniháskólann í Þrándheimi og hefur rannsakað ólíkar hliðar á sögu Evrópusamrunans. Undanfarin ár hefur hún einbeitt sér að samskiptum Noregs og ESB með áherslu á framkvæmd EES-samningsins. Hún mun einnig fjalla um þýðingu þess fyrir Noreg að standa fyrir utan ESB, hvert framlag allra Norðurlandanna til ESB gæti verið sem og hver áhrif ESB á Norðurlöndin gætu verið.
Fundurinn er hluti af fundarröð sem Norræna upplýsingaskrifstofan, Norræna félagið og Evrópustofa standa fyrir í samstarfi við sendiráð hinna norrænu landa. Þar er fjallað um mál sem eru ofarlega á baugi í Evrópuumræðunni.
Tilgangurinn með fundaröðinni er að varpa ljósi á reynslu Norðurlandanna af Evrópusamstarfi og miðla þeirri þekkingu til almennings, segir í tilkynningu frá Evrópustofu.
Fundarstjóri: Birgir Guðmundsson, deildarformaður félagsvísindadeildar Háskólans á Akureyri