Áfram skjálftavirkni. Skjálfti upp á 3,8 stig

Skjálftavirknin við Eyjafjarðarál heldur áfram. Skjálfti 3,8 að stærð mældist kl. 15:24 í dag á svæði nokkru suðaustan við þann stað þar sem meginhrinan og 5,6 skjálftinn þann 21. október voru staðsett. Nokkrir eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið.

Áfram verður fylgst náið með svæðinu, segir í athugasemdum Veðurstofunnar

Nýjast