Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægri átt á Norðurlandi eystra 15-23 m/sek og talsverðri snjókomu, en slyddu við ströndina. Á morgun hægir og léttir til. Frost verðuyr 0-5 stig en kringum frostmark við ströndina.
Vegir eru ýmist ófærir eða þungfærir. Vegurinn milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar er lokaður vegna snjóflóðahættu.
Á Akureyri er færð orðin þung á öllum helstu götum bæjarins, flestar minni götur eru ófærar. Því er ljóst að Strætisvagnar Akureyrar keyra ekkert í dag og útlitið fyrir morgundaginn er ekki gott, segir í tilkynningu frá SVA.