Áfram norðlæg átt

Akureyri í morgun/mynd karl eskil
Akureyri í morgun/mynd karl eskil

Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægri átt á Norðurlandi eystra 5-13 m/á sek, snjókomu eða éljagangi. Í nótt verður fremur hæg norðaustan átt og úrkomulítið. Frost verður á bilinu 0-6 stig, en sums staðar frostlaust.

Ólafsfjarðarmúli er lokaður, en aðrar helstu leiðir eru færar, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar.

Mikil hálka er á götum Akureyrar og eru vegfarendur hvattir til að gæta varúðar.

 

karleskil@vikudagur.is

Nýjast