Hápunktur Afmælisvöku Akureyrar verður í dag og er nóg í boði fyrir gesti og gangandi. Þar má nefna afhjúpun á sérstökum söguskiltum í gamla Innbænum, sögugöngu um Lystigarðinn kl. 11:00 og hátíðardagskrá á Akureyrarvelli sem hefst kl. 14.00. Þar verður boðið upp á hátíðlega dagskrá í tali og tónum. Aðalræðumaður verður Akureyringurinn Páll Skúlason, fyrrverandi rektor Háskóla Íslands.
Barnaskemmtun verður á Ráðhústorgi kl. 15.00 og afmælistónleikar með akureyrsku hljómsveitunum Baraflokknum, 200.000 naglbítum, Skriðjöklum og Hvanndalsbræðrum hefjast kl. 21.00 í Gilinu. Tónleikarnir verða í beinni útsendingu á N4 og Rás 2. Herlegheitunum lýkur síðan með einstakri flugeldasýningu og ljósasýningu á Menningarhúsinu Hofi og á Pollinum kl. 23.30.