14. nóvember, 2012 - 15:22
Tvöfaldur kvartett Karlakórs-Akureyrar Geysis
Afmælistónleikar Karlakórs Akureyrar-Geysis, í tilefni af 90 ára sögu kórsins, verða haldnir í menningarhúsinu Hofi á laugadaginn kl. 20.
Karlakór Akureyrar-Geysir er myndaður úr tveimur kórum; Geysi, sem stofnaður var 1922 og Karlakór Akureyrar, sem stofnaður var 1929. Þessi kórar störfuðu báðir með miklum myndarbrag í áratugi og settu mikinn svip á menningarlífið á Akureyri. Þegar komið var fram á níunda áratuginn var af ýmsum ástæðum farið að ræða sameiningu kóranna og það varð að veruleika í október árið 1990.
Á laugardaginn verður þessi 90 ára saga sögð í tónum og tali í Hofi. Flutt verða lög frá upphafstíma kóranna tveggja og rakið það tónlistarstarf sem þeim tengist fram til dagsins í dag. Lög og söngtextar hafa verið samin sérstaklega fyrir kórana og mun hluti þeirra hljóma á tónleikunum. Þá tengjast sögu kóranna ýmsir sönghópar eins og Smárakvartettinn og Geysiskvartettinn og söngperlur hafa varðveist á upptökum sem fá að hljóma í Hofi.
Á afmælistónleikunum syngur stórtenórinn og Akureyringurinn Kristján Jóhannsson, en söngur hans er hluti af þessari merku tónlistarsögu. Með honum syngur svo frændi hans, tenórinn Örn Viðar Birgisson. Svo syngur afmælisbarnið, Karlakór Akureyrar-Geysir og félagar úr kórnum, einsöngvararnir Jónas Þór Jónasson, Birgir Björnsson og Sigurður Þengilsson. Þá kemur fram tvöfaldur kvartett ásamt fimm manna hljómsveit. Tónlistarstjóri afmælistónleikanna er Hjörleifur Örn Jónsson, stjórnandi Karlakórs Akureyrar-Geysis.