Í dag efnir Sjúkrahúsið á Akureyri til afmælishátíðar. Tilefnið er að nú eru liðin 60 ár frá því að starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri var flutt í nýtt húsnæði við Eyrarlandsveg. Jafnframt eru 140 ár liðin frá því að fyrsta sjúkrahúsið á Akureyri tók til starfa.
Á afmælishátíðinni verður formlega tilkynnt um stofnun Hollvinasamtaka Sjúkrahússins á Akureyri en að henni hefur verið unnið að undanförnu. Fyrsta verkefni samtakanna er að safna fjárframlögum til að endurnýja sjúkrarúm legudeilda sjúkrahússins.
Allir starfsmenn og fyrrum starfsmenn sem og verðandi hollvinir eru boðnir velkomnir á þessa afmælishátíð.