Afmælishátíð í HA

Háskólasvæðið á Sólborg. Mynd: Hörður Geirsson.
Háskólasvæðið á Sólborg. Mynd: Hörður Geirsson.

Í tilefni af 25 ára starfsafmæli Háskólans á Akureyri er boðið til hátíðarhalda í húsakynnum skólans sunnudaginn 2. september nk. frá kl. 13:00 til 16:00. Hátíðardagskrá verður á sviði í Miðborg, anddyri háskólans, en þar verður m.a. sýndur hluti úr leikverkinu Borgarinnan og Hvanndalsbræður munu stíga á stokk. Eftir það verður boðið upp á dagskrá út um allan háskóla, bæði á Borgum og á Sólborg. Margt verður í boði fyrir börn t.d. Vísindasmiðja, sýning á vegum barnabókaseturs, bangsasjúkrahús og endurhæfing og þá munu brjálaðir vísindamenn ganga berserksgang á Borgum, eða svo gott sem.

Tónlist mun óma úti fyrir og þar verður einnig grillað, bæði sjávarfang og pylsur. Inni er svo boðið upp á köku og kaffi. Fólki verður boðið að finna innri ró í hugleiðslu í hreyfisalnum á Sólborg, farið verður í gönguferð með leiðsögn um byggingar háskólans með áherslu á arkitektúr hans og listaverk. Á bóksafninu verður opnuð málverkasýning og í lok dagsins er hægt að fara í Sögugöngu um Sólborgarsvæðið.

Nánari dagskrá og tímasetningar má finna á heimasíðu háskólans, www.unak.is.

Nýjast