Afkoman neikvæð um 200 milljónir í fyrra

Afkoma Akureyrarbæjar var neikvæð um 199,7 milljónir króna í fyrra, samkvæmt fjárhagsáætlun var hins vegar gert ráð fyrir  62,9 milljóna króna afgangi af rekstri bæjarins.Í tilkynningu frá bænum segir að reksturinn hafi gengið þokkalega og heildarniðurstaðan í meginatriðum eins og fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir, utan reiknaðra liða, einna helst áfallnar lífeyrisskuldbindingar, sem höfðu veruleg áhrif á niðurstöðuna.

Tekjur samstæðunnar voru samtals 17,4 milljaðar, en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir fyrir 16,8 milljörðum.

Tekjur A-hluta samstaðunnar voru 12,3 milljörðum, en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 12,1 milljarði.

Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Þar undir eru Aðalsjóður, Fasteignir Akureyrarbæjar, Framkvæmdamiðstöð og Eignasjóður gatna.

Nýjast