Ætlum okkur sigur

„Við erum nokkuð brattir með okkar byrjun á mótinu og erum á góðu róli,” segir Sævar Árnason aðstoðarþjálfari Akureyrar. Eftir fyrstu tvær umferðirnar í N1-deild karla í handknattleik er Akureyri með þrjú stig en liðið hefur gert eitt jafntefli og unnið einn leik. Akureyri tekur á móti ÍR í Höllinni í kvöld kl. 19:00. ÍR-ingar eru nýliðar í deildinni en engu að síður vel mannað lið með leikmenn á borð við Ingimund Ingimundarson, Sturlu Ásgeirsson og Björgvin Hólmgeirsson.

ÍR vann Aftureldingu á útivelli í fyrstu umferð en tapaði gegn Haukum á heimavelli í síðasta leik. „ÍR hefur fengið marga nýja leikmenn með mikla reynslu, bæði úr atvinnumennsku og með landsliðinu, sem þekkja einnig félagið vel. Þannig að þetta er sterkt lið og eitt af þeim betri í deildinni myndi ég halda. Við ætlum hins vegar ekkert að verða af mörgum stigum á heimavelli í vetur og stefnum á sigur í kvöld."

Nánar er rætt við Sævar í prentútgáfu Vikudags í dag.

Nýjast