Það eru tuttugu ár síðan að bílaskoðun var gefin frjáls hér á landi og nú fyrst er hægt að velja um tvo staði á Akureyri til skoðunar. Þetta eru því tímamót, segir Birgir Hákonarson framkvæmdastjóri Tékklands bifreiðaskoðunar. Fyrirtækið hefur opnað nýja skoðunarstöð á Akureyri við Dalsbraut 1.
Frumherji hefur hingað til verið eitt fyrirtækja sem boðið hefur upp á slíka þjónustu í bænum, en Birgir segir aukna samkeppni muni skila sér til neytanda. Bílaeigendur eru strax farnir að sjá breytingu til batnaðar, þar sem samkeppnisaðilinn er þegar búinn að lengja sinn opnunartíma og bjóða hærri afslætti. Við í Tékklandi höfum alltaf verið ódýrastir á markaðnum, erum ódýrastir á höfuðborgarsvæðinu og munum veita fulla samkeppni til að bjóða upp á lægsta verðið á Akureyri, segir Birgir.