Ætla að stökkva yfir 18 Eimskips gáma í Gilinu

AK Extreme er stærsta snjóbrettamót sem haldið er á Íslandi og er haldið árlega í miðbæ Akureyrar og í Hlíðarfjalli. 

Stærsti viðburðurinn verður á laugardagskvöldið en þá verður Gámastökksmót Eimskips haldið í Gilinu. Byggður hefur verið snjóbrettapallur í Gilinu en alls eru 18 Eimskips gámar notaðir í verkið og er hæðin 15 metrar. Mótshaldarar búast við  að um 6 þúsund gestir mæti á laugardagskvöldið til að horfa á eitt áhættumesta snjóbrettamót Íslandssögunnar.  Þá verða tónleika haldnir á Græna hattinum næstu þrjú kvöld í tilefni af AK Extreme.

Nýjast