Bryggjurnar eru sannarlega komnar til ára sinna og eru nánast ónýtar, þannig að það var lítið annað að gera en að endurnýja þær og sú vinna gengur vel, segir Pétur Ólafsson skrifstofustjóri Hafnarsamlags Norðurlands. Um er að ræða endurbyggingu Ísbryggju og suðurkant Togarabryggju á athafnasvæði Útgerðarfélags Akureyringa. Lægsta tilboð í verkið barst frá Íslenska gámafélaginu, 143 milljónir króna.
Þessa dagana er meðal annars verið að reka niður stálþil og ég áætla framkvæmdum ljúki næsta haust. Aðstaðan á svæðinu verður allt önnur og betri en í dag. Göt voru komin á núverandi stálþil, þannig að þetta eru nauðsynlegar framkvæmdir, segir Pétur Ólafsson.
Stálþilsplöturnar eru 147 talsins og kanturinn sem steyptur verður er 138 metrar að lengd.
karleskil@vikudagur.is