Aðalfundur hverfisráðs Hríseyjar var haldinn nýverið í húsnæði sveitarfélagsins í Hlein.
Að honum loknum var haldinn afar vel sóttur almennur íbúafundur þar sem Pétur Ingi Haraldsson, sviðsstjóri skipulagssviðs Akureyrarbæjar, fjallaði um skipulagsmál í Hrísey og kynnti vinnu við gerð nýs deiliskipulags fyrir eyjuna. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, tók þátt í fundinum ásamt nokkrum öðrum fulltrúum sveitarfélagsins.
Almennar umræður voru um málefni Hríseyjar og þau mál sem brenna á íbúum. Góð þátttaka var og umræður líflegar. Ekki leyndi sér að það er mikill hugur í Hríseyingum sem eru bjartsýnir á framtíðaruppbyggingu í eyjunni.
Eftir íbúafundinn var gestum boðið að skoða nýja fjarvinnuaðstöðu í Hlein sem hefur verið gerð upp með glæsilegum hætti. Þar eru nú fjórar vinnustöðvar, fundarherbergi, næðisrými og eldhúskrókur. Hægt er að fá afnot af aðstöðunni gegn gjaldi til styttri og lengri tíma.