Löng hefð er fyrir því að Skógræktarfélag Eyfirðinga bjóði einstaklingum og hópum að koma í Laugalandsskóg síðustu tvær helgar fyrir jól og fella sitt eigið jólatré. Nokkur fjöldi fólks mætti í skóginn um nýliðna helgi og búast má við góðri aðsókn um næstu helgi, 15.-16. desember, en hægt verður að fella sitt eigið tré frá kl. 11-15.
Ingi Jóhannsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga segir að hér sé um fjáröflunarstarf að ræða og að fyrir þær 6.000 krónur sem hvert jólatré kosti megi planta út hátt í 50 trjám.
Sem fyrr segir getur fólk sótt sitt eigið tré í skóginn um næstu helgi. Ef ekið er frá Akureyri er beygt til vinstri af þjóðvegi eitt skömmu áður en komið er að Þelamerkursundlaug. Boðið er upp á rjúkandi ketilkaffi og kakó þegar draumatréð er fundið en hvert tré kostar 6.000 krónur.