76 þúsund manns í Hlíðarfjalli

Nýliðinn vetur er sá 2.-3. fjölmennasti í sögu Hlíðarfjalls en um 76 þúsund manns heimsóttu skíðasvæðið. Þetta er 24% aukning frá því í fyrra en þá voru gestir 58 þúsund. „Þetta var ágætis vetur og við erum nokkuð sátt,“ segir Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður í Hlíðarfjalli. Skíðavertíðinni er ekki endanlega lokið en verði veður gott verður opið um helgar fram eftir mánuði að sögn Guðmundar Karls.

throstur@vikudagur.is

Nýjast