70 þúsund manns skoða Akureyrarkirkju á ári

„Akureyrarkirkja hefur mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Hún blasir við farþegum skemmtiferðaskipanna sem sigla inn á Pollinn. Kirkjan er eitt helsta kennileiti bæjarins, tákn hans og reyndar meðal þekktustu bygginga á landinu. Þegar skemmtiferðaskip eru á Pollinum fyllast kirkjutröppurnar af fólki. Rútur sem koma í bæinn með ferðafólk byrja oft á því stoppa við kirkjuna,“ segir sr. Svavar Alfreð Jónsson sóknarprestur á Akureyri.

Prestur sýnir kirkjuna

„Starfsmaðurinn sem sýnir kirkjuna hefur ekki alltaf verið prestur enda er ekki um hefðbundna prestsþjónustu að ræða. Undanfarin ár höfum við verið svo heppin að hafa sr. Jónu Lísu í þessu hlutastarfi, en hún hefur áratuga langa reynslu af því að vera leiðsögumaður og talar mörg tungumál. Vandfundin er betri manneskja í þetta starf.“

Nýjast