57,5 % sögðu já í NA kjördæmi

Frá kjörstað í gær
Frá kjörstað í gær

Talningu lauk í Norðausturkjördæmi rétt eftir klukkan sex í morgun og var það fyrsta kjördæmið til að skila öllum tölum úr þjóðaratkvæðagreiðslunni um tillögur stjórnlagaráðs.

13.216 greiddu atkvæði í Norðausturkjördæmi. 7.155, 57,5% þeirra sem tóku afstöðu, sögðu já við því að tillögur stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá. 5.285, 42,5% þeirra sem tóku afstöðu, sögðu nei, segir í frétt á vef Rúv.

73,4% greiddu atkvæði með því að náttúruauðlindir sem ekki eru í einkaeigu verði lýstar þjóðareign. 59,8% vilja að ákvæði um þjóðkirkju verði í stjórnarskrá og 68,6% vilja auka persónukjör í kosningum til Alþingis.

Kjósendur í Norðausturkjördæmi höfnuðu hins vegar tillögu um að ákvæði yrði sett í stjórnarskrá um jafnt vægi atkvæða, 30,5% sögðu já en 69,5% nei.

7.276, 65,9% þeirra sem tóku afstöðu, sögðu já við sjöttu spurningunni, um að tiltekið hlutfall kosningabærra manna geti krafist þess að mál fari í þjóðaratkvæðagreiðslu, segir á mbl.is

Nýjast