506 án atvinnu á Norðurlandi eystra

Fólki á atvinnuleysisskrá á Norðurlandi eystra fækkaði í síðasta mánuði um 68 miðað við apríl. Að jafnaði voru 506 án atvinnu, 243 karlar og 263 konur. Flestir sem voru án atvinnu í maí búa á Akureyri, samtals 358 manns.

Í Norðurþingi búa 55 og í Dalvíkurbyggð eru 34 á atvinnuleysisskrá. Skráð atvinnuleysi í maí á landinu öllu var 4,3 % og voru að meðaltali 7.515 atvinnulausir. Skráð atvinnuleysi á Norðurlandi eystra í maí var 3,4 %.

Samkvæmt upplýsingum Vinnumálastofnunar voru skráð ellefu laus störf í mánuðinum, sem er sami fjöldi og á apríl.

karleskil@vikudagur.is

 

Nýjast