Hinn árlegi Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda opnar á Glerártorgi á Akureyri í dag og stendur til þriðjudagsins 2. apríl. Kristján Karl Kristjánsson rekstrarstjóri segir um 5000 bókatitla vera í boði. Hér eru bækur fyrir alla aldurshópa þannig að það ætti enginn að vera í vandræðum með að finna sér eitthvað við hæfi. Mín reynsla af akureyringum er sú að þeir eru miklir bókaormar og það hefur alltaf selst vel af bókum hérna fyrir norðan. Ég á ekki von á öðru en svo verði einnig í ár, segir Kristján. Þetta er sjötta árið í röð sem bókamarkaðurinn er haldinn á Akureyri.
throstur@vikudagur.is