50 ár frá fárviðrinu mannskæða

Haukur Sigvaldason og Jón Adolf Steinólfsson við bautasteininn sem afhjúpaður verður í dag/mynd Atli…
Haukur Sigvaldason og Jón Adolf Steinólfsson við bautasteininn sem afhjúpaður verður í dag/mynd Atli Rúnar

Aftakaveður gekk yfir landið í dymbilviku 1963 með þeim afleiðingum að sextán sjómenn fórust, skepnur urðu úti og mikið tjón varð á gróðri og eignum fólks.

Fárvirðrið varð ellefu norðlenskum sjómönnum að aldurtila, þar af sjö Dalvíkingum. Í dag, 9. apríl verður þess minnst að nákvæmlega 50 ár eru liðin frá mannskaðaveðrinu og verður haldin minningarathöfn á Dalvík og á Eyjafirði.

Eftir hádegi mun floti eikarbáta sigla frá Dalvík, Hauganesi, Akureyri og Húsavík og hittast austur af mynni Eyjafjarðar. Þar verður blómakransi varpað í sjóinn í minningu þeirra er fórust í óveðrinu.

Síðdegis verður athöfn við Dalvíkurhöfn, þar sem afhjúpaður verður bautasteinn fremst á norðurgarði hafnarinnar.

Bautasteininn gerði Jón Adolf Steinólfsson.

Minningarathöfn verður síðan haldin í Dalvíkurkirkju.

 

karleskil@vikudagur.is

Nýjast