Aftakaveður gekk yfir landið í dymbilviku 1963 með þeim afleiðingum að sextán sjómenn fórust, skepnur urðu úti og mikið tjón varð á gróðri og eignum fólks.
Fárvirðrið varð ellefu norðlenskum sjómönnum að aldurtila, þar af sjö Dalvíkingum. Í dag, 9. apríl verður þess minnst að nákvæmlega 50 ár eru liðin frá mannskaðaveðrinu og verður haldin minningarathöfn á Dalvík og á Eyjafirði.
Eftir hádegi mun floti eikarbáta sigla frá Dalvík, Hauganesi, Akureyri og Húsavík og hittast austur af mynni Eyjafjarðar. Þar verður blómakransi varpað í sjóinn í minningu þeirra er fórust í óveðrinu.
Síðdegis verður athöfn við Dalvíkurhöfn, þar sem afhjúpaður verður bautasteinn fremst á norðurgarði hafnarinnar.
Bautasteininn gerði Jón Adolf Steinólfsson.
Minningarathöfn verður síðan haldin í Dalvíkurkirkju.
karleskil@vikudagur.is