400 tonn af sandi

Allt að 400 tonnum af sandi var dreift á götur og stíga Akureyrarbæjar í vetur og hefur magnið aldrei verið meira. „Þetta stafar af óvenjulegum vetri þar sem hálkan var mikil og við urðum að svara kröfum bæjarbúa,“ segir Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála á Akureyri. Það er ljóst að mikið verkefni bíður starfsmanna bæjarins við að hreinsa burt sandinn. „Við erum aðeins byrjaðir en höfum haldið að okkur höndum þar sem allra veðra er von. En það verður ekki seinna en núna um mánaðamótin sem við förum á fullt í að hreinsa,“ segir Jón.

throstur@vikudagur.is

Nýjast