Aðalsteinn Árni Baldursson formaður Framsýnar á Húsavík er afar ósáttur við Björn Snæbjörnsson formann Einingar-Iðju á Akureyri, sem jafnframt er formaður Starfsgreinasambans Íslands.
Sérstakur dagur, fundur með svokölluðum félögum í verkalýðshreyfingunni. Formaður SGS, Björn Snæbjörnsson, telur ekki hægt að starfa með formanni Framsýnar og Vl. Akraness og safnar liði. Þeir séu með og miklar kröfur fyrir hönd verkafólks, heilar kr. 20.000 á mánuð, skrifar Aðalsteinn Árni á Facebook síðu sína í gærkvöld. Það þýðir að laun verkafólks hækki úr kr. 192.000 í kr. 212.000 á mánuði. Þetta er ófært segir vinur litla mannsins frá Akureyri, maðurinn sem fékk 374% launahækkun á síðasta aðalfundi Stapa, lífeyrissjóðs. Hann var með um kr. 42.000 á mánuði og hefur nú 160.000 á mánuði. Eru hans félagsmenn virkilega ánægðir með þetta, maðurinn sem barðist fyrir því að félagsmenn Einingar samþykktu 2,8% launahækkun. Ef svo er, skil ég ekki verkalýðsbaráttu á Íslnadi, því miður, skrifar Aðalsteinn Árni.