Alls komu 32 umferðarlagabrot inn á borð lögreglunnar á Akureyri um liðna helgi. Mikill fjöldi fólks var samankominn í bænum vegna Bíladagshátíðarinnar sem lýkur í dag. 24 voru teknir fyrir of hraðan akstur, fjórir fyrir ölvunarakstur og fjórir fyrir fíkniefnaakstur, þar af einn í gærkvöld. Hátíðin hefur farið misvel í bæjarbúa en lögreglunni hafa borist margar kvartanir vegna hávaða og láta á götum bæjarins frá sl. fimmtudegi.