Alls voru 1.690 fiskiskip á skrá hjá Siglingastofnun um áramótin og hafði þeim fjölgað um 35 frá árinu áður. Ef litið er á Norðurland eystra kemur í ljós að skráðum fiskiskipum fækkaði um þrjú á síðasta ári, þau voru um áramótin samtals 224.
Flest fiskiskip voru með skráða heimahöfn á Vestfjörðum, eða 399 skip, sem er nærri fjórðungur fiskiskipastólsins
Opnir fiskibátar á Norðurlandi eystra voru samtals 113, vélskipin voru 100 og togararnir 11 talsins.
Meðalaldur fiskiskipa á Norðurlandi eystra var um áramótin 24 ár, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands.