Veitingageirinn á Akureyri tók sig saman og sló til góðgerðarkvöldverðar sl. miðvikudag og safnaði til styrktar matargjafa Akureyrar og nágrennis í leiðinni
200.000 krónur söfnuðust í sveinsprófi matreiðslunema í VMA á Akureyri síðastliðinn miðvikudag, þegar níu matreiðslunemar luku sveinsprófi eftir að hafa lokið námi í þriðja bekk í matreiðslu í vetur. Sú fjárhæð rennur til Matargjafa Akureyrar og nágrennis.
Sveinspróf í matreiðslu var haldið í þriðja skiptið í Verkmenntaskólanum á Akureyri miðvikudaginn 4. júní en síðast var það árið 2023 og þar á undan árið 2020.
Árið 2023 var framreiðsla kennd í fyrsta skiptið við Verkmenntaskólann á Akureyri og því var einnig sveinspróf í framreiðslu haldið samhliða sveinsprófi í matreiðslu, þar sem níu framreiðslunemar kláruðu sveinspróf og markaði það tímamót í sögu greinarinnar á Norðurlandi.
Matreiðslumennirnir að loknu sveinsprófi í Verkmenntaskólanum. Frá vinstri: Aðalsteinn Óli Magnússon, Aron Nökkvi Erlendsson, Ísak Örn Björgvinsson, Patrekur Óli, Grétar Már Björnsson, Ottó Daníel, Mikael Páll Davíðsson, Kamilla Steindórsdóttir og Gareese Gray.
Sex rétta kvöldverður – fyrir enga gesti?
Sveinspróf í matreiðslu og framreiðslu er margþætt en einn prófþátturinn er sex rétta kvöldverður sem er iðulega framreiddur til gesta og fagmeistara nemanna.
Þetta er mjög hátíðleg stund og markar endalok krefjandi náms og prófs hjá nemanum.
Í ár var framreiðslan ekki kennd í Verkmenntaskólanum og því stefndi allt í að þessi gestakvöldverður yrði ekki að veruleika og að matreiðslunemar myndu því elda þennan sex rétta kvöldverð fyrir enga gesti.
Framreiðslumannateymið í kvöldverðinum. Frá vinstri: Alexander Magnússon,
Þuríður Margrét Thorlacius, Jón Heiðar Sveinsson, Ingibjörg Bergmann Bragadóttir,
Björg Elva Friðfinnsdóttir, Mónika Sól Jóhannsdóttir, Einar Karl Guðmundsson og
Saga Margrét Blöndal.
Farið í lausnaleit
„Á föstudeginum stefndi í það að ekki yrðu gestir í sveinsprófinu, sem er auðvitað óhefðbundið og mjög svekkjandi fyrir sveinsprófstaka og aðstandendur þeirra, og meistara líka,“ segir Ingibjörg Bergmann, framreiðslumeistari og einn eigenda Múlabergs Bistro&Bar á Akureyri.
„Að leggja alla þessa vinnu og ástríðu í þetta gríðarlega krefjandi prófverkefni og henda matnum svo í ruslið – það er ótrúlega leiðinlegt. Þetta eru auðvitað sex réttir fyrir sex gesti sem þarf að skila á ákveðinn hátt,“ segir hún.
Framreiðslumenn á svæðinu ákváðu að kanna hvort þeir gætu með sameiginlegu átaki leyft meisturum nemanna, aðstandendum og öðrum gestum að fagna með tilvonandi sveinum og gera sem mest úr þessari stóru stund í lífi sveinsprófstakanna.
200 þúsund króna styrkur til Matargjafa Akureyrar og nágrennis
Skemmst er frá því að segja að framreiðslumenn á svæðinu tóku höndum saman og buðu fram krafta sína við alla undirbúningsvinnu og vinnu við kvöldverðinn sjálfan, endurgjaldslaust. Ákveðið var að bjóða upp á vínpörun til gesta með kvöldverðinum og að framreitt yrði líkt og í sveinsprófi í framreiðslu með ýmsum framreiðsluaðferðum.
Úr varð hugmynd að slá tvær flugur í einu höggi og styrkja gott málefni í leiðinni með að rukka inn á viðburðinn 5.000 kr. og að allur ágóði myndi renna til góðgerðarmála. Fyrir valinu varð Matargjafir Akureyrar og nágrennis.
„Það lá beinast við að gera þetta að góðgerðarkvöldverði í leiðinni og styrkja þessi frábæru samtök sem vinna svo óeigingjarnt starf allan ársins hring í sjálfboðavinnu. Það er svo gríðarlegur meðbyr og allir tilbúnir að hjálpa svo við vorum ekki lengi að fá styrki og stuðning frá birgjum og svo margir framreiðslumenn klárir að aðstoða í undirbúning og kvöldverði sem er alveg ómetanlegt – enda muna flestir eftir stressinu og álaginu sem fylgdi sínu sveinsprófi og vilja því ólmir hjálpa,“ segir Ingibjörg létt í bragði.
„Mig langar að þakka sérstaklega Innnes, Mekka, Blómaval/Húsasmiðjunni og Blómabúð Akureyrar fyrir þeirra styrki – það hækkaði þessa upphæð sem við náum að gefa áfram alveg gríðarlega. Auðvitað fá allir aðrir sem tóku þátt í þessum viðburði bestu þakkir og langsótt að þylja þá alla upp en Jón Heiðar á sérstakt hrós skilið fyrir ómetanlega hjálp í undirbúningi. Það var ótrúlegt að taka þátt í svona verkefni og að það séu allir svona boðnir og búnir að gera og græja, vinna frítt og brosandi út að eyrum á meðan – það er svo frábært fólk í þessum geira á Akureyri, það er ekki hægt að segja annað,” segir Ingibjörg.
Eftirminnileg kvöldstund
Hluti af sveinsprófi í framreiðslu er að búa til blómaskreytingu á borð, sem er hluti af borðlagningu sveinsprófsnema.
„Við ákváðum að taka þetta alla leið fyrst við vorum á annað borð byrjuð og skelltum í 8 blómaskreytingar en við fengum fullt af gefins blómum frá Blómavali og einnig Blómabúð Akureyrar. Við seldum svo allar blómaskreytingarnar á uppboði um kvöldið og náðum að hækka styrkinn til Matargjafa um 60 þúsund krónur.“
Ingibjörg segir að viðburðurinn hafi heppnast einstaklega vel. „Úr varð virkilega eftirminnileg kvöldstund með glæsilegum mat að hætti matreiðslunemanna – sem nú geta kallað sig nýsveina,“ segir hún að lokum.
Salurinn var fallega uppsettur og skreyttur með blómaskreytingum að hætti framreiðslumanna í boði Blómaval og Blómabúð Akureyrar.