200 þúsund ferðamenn til Akureyrar

Það stefnir í metfjölda í komu erlendra ferðagesta til Akureyrar og nágrenni í sumar. Áætlað er að um 200 þúsund manns sæki höfuðstað norðursins heim en af þeim koma 65-70 þúsund gestir frá skemmtiferðaskipum. Þetta segir Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Markaðstofu Norðurlands. „Við búumst við 20% aukningu frá síðasta sumri í það minnsta. Í fyrra var einnig svipuð aukning á milli ára og því má reikna með allt að helmingi fleiri ferðamönnum á Akureyri í sumar en fyrir tveimur árum."

Nánar er fjallað um málið í prentútgáfu Vikudags.

throstur@vikudagur.is

Nýjast