2 milljónir söfnuðust á Mottuboðinu í gærkvöld

Í gærkvöldi stóð Klúbbur Matreiðslumeistar á Norðurlandi í samstarfi við Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis að glæsilegu Mottuboði í Hofi. Þar mættu um 300 gestir sem skemmtu sér konunglega. Þar að auki var fjölmargt listafólk sem skemmti gestunum ásamt hópi matreiðslumanna í Klúbbi Matreiðslumeistara sem bauð upp á 20 rétta matarveislu.

Veislustjóri kvöldsins var Sigurvin „Fíllinn"Jónsson og uppboðshaldari var Sigurður Guðmunsson. Áhöfnin á Kleifaberginu toppaði uppboðið og bauð 285 þúsund krónur í treyjuna frá KIEL, samtals safnaðist af uppboðinu 730.000 og heildarupphæð kvöldins er um 2 milljónir króna sem rennur beint til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.

Klúbbur Matreiðslumeistara á Norðurlandi þakkar öllum þeim sem mættu á boðið, birgjum sem gáfu hráefni og drykki, veitingastöðunum, fyrirtækjunum, fjölmiðlunum sem fjölluðu um boðið, listafólkinu og öllum hinum sem lögðu hönd á plóg.

Nýjast