18 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot

Húsnæði Hérðasdóms Norðurlands eystra
Húsnæði Hérðasdóms Norðurlands eystra

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í 18 mánaða fangelsi fyrir nauðgun og önnur kynferðisbrot gegn stúlku sem var 12 og 13 ára gömul er brotin áttu sér stað. Ákærði neitaði sök og krafðist sýknu, stúlkan þótti trúverðug að mati dómsins og einnig önnur vitni.

Í niðurstöðu dómsins segir að ákærði hefði brotið gegn ungri stúlku og misnotað það traust sem honum var sýnt sem vini fjölskyldunnar, annars vegar þegar stúlkan þáði heimboð hans og hins vegar þegar honum var leyft að slást í hóp fjölskyldunnar í sumarbústað. Þótt ekki sé sannað í málinu að ákærða hefði mátt vera ljóst hversu illa stúlkan stóð fyrir, hefði hann framið gegn ungri stúlku brot sem gætu haft alvarlegar afleiðingar fyrir hana til lengri tíma litið.

Héraðsdómi þótti ekki möguleiki á að binda refsinguna skilorði og var maðurinn dæmdur til fangelsins í átján mánuði. Þá er honum gert að greiða stúlkunni 700 þúsund krónur í skaðabætur, svo og allan málskostnað.

 

karleskil@vikudagur.is

Nýjast