Gjald fyrir stöðubrot ef lagt er í stæði fatlaðra hækkar á Akureyri á næsta ári. Gjaldið er nú 9.000 krónur, en verður 15.000 krónur á nýju ári. Hækkunin er 67%.
Leiga fyrir fastleigustæði í eitt ár verður óbreytt, 25.200 krónur.
Aukastöðugjaldið (klukkubrot) verður sömuleiðis óbreytt, 2.250 krónur.
Gjald fyrir að leggja ólöglega er í dag 3.450 krónur og verður sama gjaldið áfram.
Veittur er 33 % afsláttur af gjaldi ef það er greitt án fyrirvara innan þriggja virkra daga frá álagningu. 50% álag greiðist hins vegar ef gjaldið hefur ekki verið greitt innan 14 daga frá álagningu