Alls bárust um 120 umsóknir um sumarstörf hjá Norðlenska á Akureyri, en ráðið var í 35 störf. Jóna Jónsdóttir starfsmannastjóri fyrirtækisins segir að svipaður fjöldi umsókna hafi borist nú og undanfarin ár og þá séu álíka margir sumarstarfsmenn ráðnir fyrir komandi sumar og á liðnum árum. Við erum enn að fá talsvert af umsóknum sem bendir til þess að skólakrakkar séu heldur sein að leita sér að vinnu eða það er lítið um sumarstörf fyrir þau, segir Jóna.