11 milljónir til verkefna á Norðurlandi

Tólf styrkir voru veittir úr Þróunarsjóði Ferðamála, samtals 31,1 milljón króna, en að sjóðnum standa atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið og Landsbankinn . Þetta var önnur úthlutun úr sjóðnum og bárust honum 56 umsóknir að þessu sinni.

Þróunarsjóðurinn var stofnaður í tengslum við verkefnið Ísland allt árið. Markmið sjóðsins er að lengja ferðamannatímann á Íslandi, með því að efla starfsemi fyrirtækja í ferðaþjónustu utan háannatíma og auka á þann hátt arðsemi þeirra. Stofnendur sjóðsins eru Landsbankinn og þáverandi iðnaðarráðuneyti, nú atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti. 

Ákveðið hefur verið að framlengja starfsemi Þróunarsjóðsins og verða á næsta ári veittar 35 milljónir króna úr honum.

Frá upphafi hefur við mikil áhersla á að úthluta úr sjóðnum til verkefna víðsvegar um landið. Til fyrirtækja á Norðurlandi hafa runnið rúmar 20 milljónir króna til 10 verkefna á þessu ári.

Þau fyrirtæki af Norðurlandi sem fengu styrk að þessu sinni voru:

  • Skjaldarvík ferðaþjónusta – Jólaævintýri – 1.000.000 kr.
    Til að skipuleggja námskeið og kvöldverði þar sem íslenskar jólahefðir eru kynntar fyrir ferðamönnum og þá sér í lagi laufabrauðsgerð og matarhefð á jólum.
  • Norðurhjari – Uppbygging ferðaþjónustu frá Kelduhverfi að Bakkafirði – 5.000.000 kr.
    Til að vinna að gerð áætlunar um uppbyggingu á völdum ferðamannastöðum á svæðinu frá Kelduhverfi að Bakkafirði, skipulagi þeirra og merkingum. Greind verða tækifæri í ferðaþjónustu á haustin og vorin, m.a. í veiðiferðamennsku og menntatengdri ferðaþjónustu.
  • Harald Jóhannesson – Fuglaskoðunarferðir á Norðausturlandi – 3.000.000 kr.
    Til að skipuleggja fugla- og náttúruskoðunarferða fyrir erlenda ferðamenn og þróa markaðsefni fyrir þær hérlendis og erlendis.
  • Mývatnsstofa ehf. – Orka vetrarins – 1.800.000 kr.
    Mývatnsstofa og Húsavíkurstofa er samstarfsvettvangur aðila í verslun og ferðaþjónustu á Norðausturlandi. Félögin koma að ýmsum viðburðum en þeirra á meðal er Orkugangan, "Hestar á ís"  og  "Mývatnsmaraþon".

 

 

 

 

 

Nýjast