11% ætla að hætta mjólkurframleiðslu á Norðausturlandi

Kúabúum landsins hefur fækkað verulega á undanförnum árum og útlit er fyrir að þeim fækki enn frekar. Á aðalfundi Landssambands kúabænda var kynnt viðhorfskönnun sem sambandið lét gera og voru kúabændur landsins meðal annars spurðir um framtíðaráform.

Fram kemur í viðhorfskönnuninni að hærra hlutfall svarenda af Norðausturlandi hyggst hætta mjólkurframleiðslu á næstu 10 árum en á landinu í heild. 11,4% svarenda á Norðausturlandi ætla að hætta framleiðslu á næstu 10 árum. Á landinu öllu svara 6,9% að þeir hyggist hætta framleiðslu á næsta áratug.

Stærri bú

Kúabúin hafa stækkað mikið á undanförnum árum og sú þróun virðist ætla að halda áfram. 60% svarenda á Norðausturlandi ætla að auka framleiðsluna, á meðan 62% svarenda á landinu í heild ætla að auka framleiðsluna á næstu 10 árum. Um fjórðungur svarenda í landshlutanum ætla að halda framleiðslunni óbreyttri en 1,1% ætla að minnka við sig. Á landinu öllu ætla 30% bænda að halda óbreyttri framleiðslu, á meðan 0,8% ætla að minnka við sig.

Hátt í 400 bændur tóku þátt í könnun Landssambands kúabænda, þar af 88 á Norðausturlandi.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast