1.000 tónleikar á 10 árum

Haukur stendur vaktina á Græna hattinum allar helgar. Mynd/Þröstur Ernir
Haukur stendur vaktina á Græna hattinum allar helgar. Mynd/Þröstur Ernir

Haukur Tryggvason tónleikahaldari á Græna hattinum á Akureyri fagnar tímamótum um helgina. Í dag  eru liðin tíu ár síðan hann tók við rekstri staðarins.

Haukur hélt sína fyrstu tónleika í febrúar 2003 á staðnum og síðan þá hefur Græni hatturinn skipað sér á stall sem einn vinsælasti og rótgrónasti tónleikastaður landsins. Haukur segir að um þúsund tónleikar hafi verið haldnir á Græna hattinum á þessum tíu árum.  „Það er metnaðarfull dagskrá nánast um hverja helgi og það er eitthvað sem Akureyringar og nærsveitamenn kunna að meta,“ segir Haukur.

 Engin sérstök afmælishátíð verður um helgina, enda er tónlistarveisla á staðnum nánast allar helgar. Það eru hins vegar strákarnir í Dúndurfréttum sem fá þann heiður að spila á sjálfan afmælisdaginn. Haukur segir flesta af helstu tónlistarmönnum landsins hafa spilað á Græna hattinum. „Þannig að staðurinn býður upp á ansi fjölbreytta tónlist og fólk á öllum aldri ætti að geta fundið sér eitthvað við hæfi. Tónleikum fjölgar á hverju ári og ég er því bjartsýnn á að staðurinn muni vaxa og dafna í framtíðinni."

throstur@vikudagur.is

Nýjast