Undirbúningur að byggingu hótels á Akureyri hefur staðið yfir í um eitt og hálft ár og bæjaryfirvöld hafa nú úthlutað félaginu Norðurbrú ehf. lóðinni við Hafnarstræti 80. Ég er mjög sáttur við þessa staðsetningu, því rannsóknir sýna að margir gestir hótela vilja vera miðsvæðis, segir Björn Friðþjófsson framkvæmdastjóri verktakafyrirtækisins Tréverks á Dalvík.
Að Norðurbrú standa öflugir fjárfestar á Norður- og Suðurlandi. Tréverk hefur verið umsvifamikið fyrirtæki í byggingariðnaðinum á Eyjafjarðarsvæðinu og næsta stóra verkefni fyrirtækisins er bygging stórs hótels, gangi allar áætlanir eftir.
Þarna er áformað að byggja 100 herbergja hótel og kostnaðurinn er áætlaður 1,6 til 1,7 milljarðar króna. Ef áætlanir ganga eftir, verður hægt að hefja framkvæmdir í haust. Byggingartíminn er um tvö ár, þannig að ég er að tala um að hótelið verði tekið í notkun sumarið 2015, segir Björn Friðþjófsson.
Bæjaryfirvöld breyttu skipulagi lóðarinnar, áður gert ráð fyrir bensínstöð og veitingarekstri á lóðinni.
Nánar í prentútgáfu Vikudags
karleskil@vikudagur.is