Amtsbókasafnið á Akureyri og Menningarhúsið Hof hafa ákveðið að vinna saman að dagskrá þar sem fjallað er um ritlist og bókmenntir á einn eða annan hátt. Markmiðið með samstarfinu er meðal annars að auka sýnileika ritlistar og bókmennta í samfélaginu.
Bókahillan
Bókahillu hefur verið komið fyrir á veitingastaðnum í Hofi, 1862 Nordic Bistro, og geta gestir og gangandi gluggað í bækurnar í hillunni. Amtsbókasafnið sér um að fylla á hilluna en bókunum er skipt út mánaðarlega og í hverjum mánuði er ákveðið þema.
Enginn veit sína ævina...
Í febrúar er þemað; Ævisögur Íslendinga á 20. öld og hefur starfsfólk Amtsbókasafnsins valið æviminningar yfir 100 Íslendinga. Titlar og umfang bókanna gefa til kynna hve fjölbreytilegur þessi hópur er og hve margt hefur á daga þessa fólks drifið.
Ævisögur spegla gjarnan lífskjör og tíðaranda í nútíð og fortíð og gefa lesendum tækifæri á að lifa sig inn í líf og störf þeirra einstaklinga sem fyrir margra hluta sakir eru eftirminnilegir, segir í tilkynningu Amtsbókasafnsins