10 milljónir til að styrkja ímynd Norðausturlands

N4 er ætlað að styrkja ímynd Norðausturlands
N4 er ætlað að styrkja ímynd Norðausturlands

Landshlutaverkefnið Sóknaráætlun Eyþings mun gera samning í þessum mánuði við sjónvarpsstöðina N4 á Akureyri um framleiðslu og dreifingu sjónvarpsefnis um málefni og atburði í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum.

Með samningnum á að styrkja ímynd svæðisins og skapa möguleika fyrir vöxt á sviði fjölmiðlunar á svæðinu og fær sjónvarpsstöðin 10 milljónir króna á árinu. Í lýsingu verkefnisins er sagt að með aukinni upplýsingamiðlun sé stefnt að því að styrkja sjálfsmynd svæðisins og gefa rétta mynd af þeim tækifærum sem það býður upp á. Að Sóknaráætlun Eyþings standa ríkið og sveitarfélögin í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum.

Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar Akureyrar er jafnframt formaður stjórnar Eyþings.

Nánar um þetta í prentútgáfu Vikudags

Nýjast