10 í einkunn

Dýri Bjarnar Hreiðarsson í Eyjafjarðarsveit náði þeim einstaka árangri í sveinsprófi í húsasmíði, sem fram fór í VMA í byrjun júní, að fá 10 í einkunn fyrir verklega þáttinn á prófinu. Dýri Bjarnar var sá eini á landinu sem hlaut þessa einkunn, en samtals þreyttu á fimmta tug sveinspróf í húsasmíði, annars vegar í Reykjavík og hins vegar á Akureyri.

Afar sjaldgæft er að nemandi fái fullt hús fyrir sveinsstykkið sitt, sem að þessu sinni var stigi með handriði, og því er Dýri Bjarnar að vonum hæstánægður með niðurstöðuna. „Jú, ætli maður verði ekki að segja að þetta teljist frekar góð niðurstaða. Við fengum 20 tíma til þess að smíða stigann, sem deildust niður á þrjá prófdaga, ásamt bóklegu prófi. Við fengum í hendur grunnteikningu og síðan þurftum við að útfæra teikninguna betur og fara síðan í smíðina sjálfa. Þetta getur vitaskuld verið afar stressandi, en lykilatriðið er að halda ró sinni og vanda til verka. Það skiptir miklu máli að nýta þessa tuttugu tíma rétt, t.d. að eyða ekki of miklum tíma í teikningarnar. Eina rafmagnsverkfærið sem við fáum í prófið er handfræsari, en síðan er okkur úthlutað öllum öðrum handverkfærum. Ég ákvað að leggja kapp á að vera tímanlega búinn að setja stigann saman og gefa mér þannig góðan tíma í pússningu og annan frágang, enda er horft töluvert á frágang,“ segir Dýri Bjarnar.

Nánar um þetta á www.vma.is

Nýjast