Í kvöld Barbara Hannigan og Sinfóníuhljómsveit Íslands

Stórtónleikar í Hofi í kvöld
Stórtónleikar í Hofi í kvöld

Sinfóníuhljómsveit Íslands og kanadíska sópransöngkonan og hljómsveitarstjórinn Barbara Hannigan eru komin til Akureyrar og halda tónleika í Hofi í kvöld 16. júní. Aðeins er ár síðan Barbara kom fyrst til landsins og sló eftirminnilega í gegn með hljómsveitinni í Hörpu á Listahátíð í Reykjavík vorið 2022. Gagnrýnandi Fréttablaðsins sagði meðal annars um þá tónleika: „Túlkunin var draumkennd og skáldleg, það ver einhver upphafin stemning yfir öllu saman,“ og „útkoman var sjaldheyrður unaður“

Barbara Hannigan hefur vakið feikilega aðdáun um heim allan undanfarin ár, fyrir stórfenglegan söng en ekki síður fyrir hæfileika sína sem hljómsveitarstjóri. Hún hefur starfað með öllum helstu hljómsveitum heims og hefur frumflutt yfir 85 ný tónverk, meðal annars eftir György Ligeti og Hans Abrahamsen. Þá hefur hún sungið í helstu óperuhúsum heims, meðal annars hið krefjandi titilhlutverk í Lulu eftir Alban Berg. Barbara Hannigan hefur hlotið ótal verðlaun fyrir list sína, meðal annars Grammy-verðlaun fyrir plötuna Crazy Girl Crazy árið 2018 og hin virtu Léonie Sonning-verðlaun árið 2020. Þegar Rolf Schock-verðlaunin féllu henni í skaut rökstuddi dómnefndin ákvörðun sína með þeim orðum að Hannigan væri „einstakur og framsækinn flytjandi sem nálgast tónlistina sem hún flytur með öflugum og lifandi hætti“.

Á efnisskrá tónleikanna í júní verða þrjú hrífandi tónverk þar sem ljóðræna og leikgleði Barböru Hannigan fá að njóta sín jafnt í söng og hljómsveitarstjórn. Tvö verkanna teljast til öndvegisverka tónbókmenntanna, það eru hin svonefnda Kraftaverkasinfónía Josephs Haydn nr. 96 og fjórða sinfónía Gustavs Mahler, hin svokallaða Himnasælusinfónía, þar sem Barbara fer með sópranhlutverkið auk þess að stjórna hljómsveitinni. Á undan sinfóníu Mahlers hljómar nýtt og spennandi verk íranska tónskáldsins Golfam Khayam, en hún nýtur mikillar velgengni fyrir tónsmíðar sínar. Leiðir þeirra Barböru Hannigan lágu saman eftir þátttöku Hannigan í samstöðutónleikum með konum í Íran og er þessi stutta og spunakennda tónhugleiðing samin með hana í huga. Sinfónía Haydns er ein af hinum snilldarlegu Lundúnasinfóníum hans þar sem kímnigáfa hans og fullkomið vald á forminu njóta sín til fulls. Himnasælusinfónía Mahlers er sömuleiðis í sérflokki meðal höfundarverka hans – klassísk í formi og aðgengileg en full af barnslegri einlægni, ást á náttúrunni og tilfinningu fyrir hinu yfirskilvitlega.

Tónleikakynning á vegum Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Tónlistarfélags Akureyrar fer fram í Hamragili kl. 18. Þar mun Michael Jón Clarke gefa tónleikagestum innsýn í efnisskrá kvöldsins. Aðgangur að kynningu Michaels Jóns er  er ókeypis.   Enn eru nokkrir miðar lausir á sjálfa  tónleikana  og um að gera fyrir  þau sem hafa ekki tryggt sér miða að gera það sem fyrst.


Athugasemdir

Nýjast