KvEnduro hópurinn hjólar á Húsavík

Ljósmynd/ Sara Ben
Ljósmynd/ Sara Ben

Á þriðjudaginn 24. júlí ætlar KvEnduro, hópur fjallahjólakvenna frá Akureyri og nágrenni, að heimsækja Húsavík og nærliggjandi svæði undir leiðsögn MTB Húsavík. „Nú þegar hafa nokkrar húsvískar konur boðað þátttöku sína en allar konur sem hafa áhuga eru hvattar til að koma með!“ segir í tilkyningu.

KvEnduro hópurinn sem hefur starfað á Akureyri síðan 2016, er einn fjölmennasti áhugamannahópur fjallahjólreiða á Íslandi og sífellt bætist í. Stelpurnar hjóla saman að minnsta kosti einu sinni í viku yfir sumarmánuðina en frá upphafi hefur áhersla verið lögð á að allar konur geti tekið þátt óháð reynslu af fjallahjólreiðum. Aðal málið er að hafa gaman og njóta þess að hjóla saman.

Ferðinni lýkur svo í mat og með því á vel völdum stað á Húsavík og gera má ráð fyrir góðu stuði.

Áhugasömum konum er bent á að hafa samband við Elínu Ólafsdóttur á netfangið eaolafs@gmail.com eða í síma 868-2358.


Athugasemdir

Nýjast