KA Íslandsmeistari í 4. flokki kvenna

Stúlkurnar í KA ásamt þjálfurum liðsins þegar titillinn var í höfn. Mynd/KA.
Stúlkurnar í KA ásamt þjálfurum liðsins þegar titillinn var í höfn. Mynd/KA.

KA er Íslandsmeistari í 4. flokki kvenna í knattspyrnu eftir 2-1 sigur gegn Breiðabliki á Akureyrarvelli sl. helgi. Það voru þær Tanía Sól Hjartardóttir og Rebekka Lind Aðalsteinsdóttir sem skoruðu mörk KA í leiknum.

„Spilamennska liðsins í sumar hefur verið algjörlega frábær og framtíðin í kvennaboltanum er svo sannarlega björt hjá félaginu,“ segir á vef KA.


Athugasemdir

Nýjast