Blakdeild Völsungs hefur ráðið yfirþjálfara

Tihomir Paunovski, nýr yfirþjálfari Blakdeildar Völsungs. Mynd fengin af facebooksíðu Blakdeildar Vö…
Tihomir Paunovski, nýr yfirþjálfari Blakdeildar Völsungs. Mynd fengin af facebooksíðu Blakdeildar Völsungs

Blakdeild Völsungs hefur ráðið Tihomir Paunovski sem yfirþjálfara fyrir starf blakdeildar á komandi tímabili. Tihomir mun sinna þjálfun meistarflokka félagsins sem og koma að þjálfun yngri flokka og sjá um að fylgja eftir stefnu blakdeildar við áframhaldandi uppbyggingu deildarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Blakdeild Völsungs

Tihomir er 52 ára gamall og kemur frá Norður Makedoníu og er með meistaragráður í íþróttafræðum frá háskóla í Skojpe í heimalandinu. Hann á að baki langan atvinnumannferil í Evrópu og einnig hefur hann víðtæka þjálfarareynslu, bæði með félagsliðum, landsliði Makedóníu og hefur verið í þjálfarateymi íslensku landsliðanna.

Tihomir hefur starfað sem þjálfari á Íslandi síðastliðin 5 ár - hjá Vestra á Ísafirði og HK í Kópavogi. 


Athugasemdir

Nýjast